Fá ókeypis forsíðuhugmynd

vefsíðusmíði fyrir íslensk fyrirtæki

Góður vefur. Fast verð. Engin binding.

Ég hanna og smíða vefi fyrir íslensk fyrirtæki og sé um þá eftir að þeir fara í loftið. Ég byrja á ókeypis forsíðuhugmynd fyrir vefinn þinn — sjónræn tillaga sem sýnir útlit og stefnu áður en þú ákveður nokkuð.

kvorn.is
kvorn.is
kvorn.is
skissa brons gull
  • 0 kr. forsíðuhugmyndin
  • frá 100.000 kr stofnverð
  • innan viku Brons tilbúið
  • enginn VSK bætist við
01 Pakkarnir

Þrír pakkar. Sami vefur, á þremur stigum.

Allir vefir byrja eins: á teikningu. Skrunaðu niður og sjáðu vefinn byggjast upp, pakka fyrir pakka.

01

Brons

Fyrir þau sem vilja vera sýnileg á netinu, hratt og vel.

100.000krog 6.900 kr á mánuði í VefreksturEnginn VSK bætist við · eða dreift: 10.000 kr á mánuði í 10 mánuði
  • Vönduð hönnun í litum og letri fyrirtækisins
  • Ein síða með allt að fimm hlutum
  • Vefumsjón: breyttu textum, myndum og listum hvenær sem er — breytingarnar birtast strax
  • Virkar jafnt í síma, spjaldtölvu og tölvu
  • Mjúkar og lifandi hreyfingar
  • Hægt að hringja eða senda póst beint af síðunni
  • Kort, leiðarlýsing, opnunartímar og samfélagsmiðlar
  • Google: fyrirtækið á Google Maps og skráð í Search Console
  • Sett upp svo ChatGPT og önnur gervigreind finni fyrirtækið

Tilbúinn innan einnar viku

Bera saman pakkana
02Vinsælast

Silfur

Fyrir fyrirtæki sem vilja meira og ráða efninu sjálf.

200.000krog 6.900 kr á mánuði í VefreksturEnginn VSK bætist við · eða dreift: 20.000 kr á mánuði í 10 mánuði

Allt í Bronsi, auk:

  • Hönnun sérsniðin að fyrirtækinu
  • Allt á einni síðu, eða allt að fjórar síður
  • Tveir eiginleikar að eigin vali, t.d. fyrirspurnarform eða bókanir

Tilbúinn innan tveggja vikna

Skoða eiginleikana
03

Gull

Vefur sem enginn annar á.

350.000krog 6.900 kr á mánuði í VefreksturEnginn VSK bætist við · eða dreift: 35.000 kr á mánuði í 10 mánuði

Allt í Silfri, auk:

  • Eigin hönnunarhugmynd, engin sniðmát
  • Þú sérð og samþykkir hugmyndina áður en smíðin hefst
  • Sérsmíðuð gagnvirk upplifun utan um reksturinn
  • Allt á einni síðu, eða allt að átta síður
  • Fimm eiginleikar, og fleiri á 10.000 kr stykkið
  • Hámarkshraði og ítarleg uppsetning fyrir Google

Tilbúinn innan þriggja vikna frá samþykkt hugmyndar

Skoða verk
02 Verk

Nýlegt verk.

Vefur sem ég smíðaði fyrir Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms.

heilsuhladvarpid.is
Forsíða heilsuhladvarpid.is

Viðskiptavinur

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Skoða heilsuhladvarpid.is
03 Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig.

Þú sérð vefinn áður en þú borgar krónu.

  1. Spjall

    Þú segir mér frá rekstrinum, í síma, tölvupósti eða í gegnum formið.

  2. Ókeypis forsíðuhugmynd

    Ég set upp eina sjónræna forsíðuhugmynd með þínu merki, litum og helstu upplýsingum. Hún er ekki fullbúin vefsíða og skuldbindur þig ekki til neins.

    hér borgarðu ekkert
  3. Smíði

    Ef þér líst á velurðu pakka og ég klára vefinn. Brons er tilbúið innan viku.

  4. Í loftið

    Vefurinn fer á þitt lén, þú færð aðgang að Vefumsjón og ég sé um reksturinn.

04 Finndu pakkann

Hvaða pakki hentar þér?

Fjórar stuttar spurningar. Engin skráning og ekkert netfang, bara heiðarleg tillaga.

Gagnvirkt

05 Verðskrá

Allt sem fylgir. Ekkert smátt letur.

Hér er hver einasti hlutur sem er innifalinn í hverjum pakka. Verðin eru endanleg, enginn VSK bætist við.

Vantar þig annað tungumál, vefverslun eða eitthvað annað? Hafðu samband og ég geri tilboð.

Hugmyndir að eiginleikum

Silfur inniheldur tvo eiginleika og Gull fimm. Í Gulli bætirðu við fleiri á 10.000 kr stykkið.

Þetta eru bara hugmyndir. Þú ræður hvað fer á vefinn þinn.

Ertu með eitthvað annað í huga? Segðu mér frá því.

Samband og bókanir

  • Fyrirspurnarform
  • Tilboðsbeiðni með myndum
  • Bókunarhnappur (Noona, Calendly o.fl.)
  • Spjallhnappur (Messenger eða WhatsApp)
  • Skráning á póstlista
  • Atvinnuumsóknir

Myndir og efni

  • Myndasafn eða Instagram-straumur
  • Fyrir/eftir myndir
  • Verkefnasafn
  • Myndband
  • Umsagnir viðskiptavina
  • Teymið
  • Saga fyrirtækisins
  • Algengar spurningar
  • Fréttir og tilkynningar

Rekstur

  • „Opið núna“, sem sýnir sjálfkrafa hvort er opið
  • Tilkynningaborði efst á síðunni
  • Matseðill eða verðskrá
  • Gjafabréf
  • Viðburðadagatal
06 Mánaðargjaldið

Ég sé um tæknina. Þú ræður efninu.

Öruggur og uppfærður vefur með einfaldri Vefumsjón.

6.900kr á mánuði

Sama verð með Bronsi, Silfri og Gulli · Enginn VSK

Vefumsjón

Breyttu efninu sjálf/ur

Í Vefumsjón geturðu breytt efninu hvenær sem er. Breytingarnar birtast strax á vefnum.

Stækkun

Bæta einhverju nýju við

Nýr kafli, ný síða eða ný virkni fær sérstakt tilboð.

Innifalið í Vefrekstri

  • Hýsing og öryggiSSL, örugg hýsing og regluleg afrit.
  • Vöktun og viðhaldÉg fylgist með virkni vefsins og sé um tæknina.
  • VefumsjónBreyttu textum, myndum, verðum og listum hvenær sem er — breytingarnar birtast strax á vefnum.
  • Heimsóknir og virkniÍ Vefumsjón sérðu gesti, vinsælustu síður og smelli.
  • Tæknileg aðstoðÉg skoða málið ef vefurinn eða Vefumsjón virkar ekki.
  • Engin bindingÞú getur sagt upp hvenær sem er og átt áfram vefinn.
07 Spurningar

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Sendu mér línu og ég svara innan 1–2 virkra daga.

Nei. Ein sjónræn forsíðuhugmynd er ókeypis og án skuldbindinga. Full hönnun og uppsetning hefst aðeins ef þú velur að halda áfram.

Nei. Þú getur sagt upp hvenær sem er.

Já. Ef þú hættir færðu vefinn afhentan. Lénið er alltaf skráð á þitt nafn.

Já. Vefumsjón fylgir öllum pökkum. Þar geturðu breytt textum, myndum, verðum, opnunartímum, töflum og listum hvenær sem er. Breytingarnar birtast strax á vefnum.

Já. Vefrekstur kostar 6.900 kr á mánuði með Bronsi, Silfri og Gulli. Munurinn á pökkunum liggur í stærð og smíði vefsins en reksturinn er sá sami.

Nýr kafli, ný undirsíða, ný virkni, breytt skipulag eða annað sem er ekki þegar til á vefnum telst stærri breyting. Þá förum við yfir verkefnið saman og þú færð sérstakt tilboð áður en vinna hefst.

Texta og myndir, tilbúið til birtingar. Ég sé um allt annað.

Brons er tilbúið innan einnar viku og Silfur innan tveggja vikna eftir að efnið berst. Gull er tilbúið innan þriggja vikna frá því að þú samþykkir hugmyndina.

Já. Þú greiðir bara mismuninn á pökkunum, t.d. 100.000 kr úr Bronsi í Silfur.

Í Gulli, já, á 10.000 kr stykkið. Brons og Silfur koma með föstum fjölda eiginleika (engum og tveimur), svo ef þú þarft fleiri er næsta skref að uppfæra.

Já, vaxtalaust á 10 mánuði: 10.000 kr á mánuði fyrir Brons, 20.000 kr fyrir Silfur og 35.000 kr fyrir Gull. Afborganir stofnverðs bætast við 6.900 kr mánaðarlegan Vefrekstur. Ef þú segir upp áður en stofnverðið er fullgreitt greiðast eftirstöðvarnar.

Ekki enn. Sendu fyrirspurn og ég hef samband. Við förum yfir verkið og greiðslufyrirkomulagið saman áður en nokkuð er ákveðið.

Ég set upp eða laga skráningu fyrirtækisins á Google Maps (Google Business Profile), með opnunartímum, síma, heimilisfangi og myndum, og skrái vefinn í Google Search Console og hjá Bing. Google þarf að staðfesta að þú eigir fyrirtækið, oftast með símtali eða stuttu myndbandi, og það tekur þig nokkrar mínútur.

Ég set vefinn upp svo gervigreind eins og ChatGPT geti fundið hann og skilið: upplýsingar um fyrirtækið eru sérmerktar fyrir vélar, vefurinn er opinn leitarvélum gervigreindar og skráður hjá Google og Bing, sem ChatGPT leitar í. Enginn getur lofað hverju gervigreind svarar, en svona fær fyrirtækið þitt bestu möguleikana.

Nei, tölvupóstur er ekki hluti af þjónustunni.

Nei. Verðin á vefnum eru endanleg, enginn VSK bætist við.

Það er ekki hluti af pökkunum, en hafðu samband og ég geri tilboð.

08 Hafa samband

Fáðu ókeypis forsíðuhugmynd.

Segðu mér stuttlega frá fyrirtækinu. Ég útbý eina sjónræna tillögu að forsíðu svo þú getir séð stefnuna áður en þú ákveður hvort við höldum áfram.

Engin greiðsla fer fram á vefnum. Fyrirspurn skuldbindur þig ekki til neins.

Forútfyllt

Ég nota upplýsingarnar eingöngu til að svara þér.

Takk fyrir!

Fyrirspurnin er komin til mín. Ég svara innan 1–2 virkra daga.